Um skólann:Akurskóli hóf starfsemi haustið 2005. Skólinn var formlega vígður 9. nóvember 2005. Akurskóli er staðsettur í Innri-Njarðvík en nafn skólans er dregið af Akurskóla sem var byggður árið 1891, skólahald stóð þar fram til ársins 1906.
Heiðarskóli
Grunnskóli í Keflavík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Þann 21. júlí 1997 var fyrsta skóflustungan tekin að Heiðarskóla. Hann var byggður sem tveggja hliðstæðna heildstæður grunnskóli, þ. e. tvær bekkjardeildir í árgangi frá 1. – 10. bekk. Hann er jafnframt fyrsti skólinn á Íslandi sem byggður er í einum áfanga með íþróttahúsi og sundlaug. Skólinn tók síðan til starfa haustið 1999.
Holtaskóli
Grunnskóli í Keflavík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Skólinn tók til starfa 1952 og hét þá Gagnfræðaskólinn í Keflavík. Fyrstu árin var kennt í Barnaskólanum við Skólaveg og í Sjálfstæðishúsinu sem stóð á horni Hafnargötu og Skólavegar. Árið 1962 var lokið við byggingu nýs skólahúss við Sunnubraut 32 og það tekið í notkun 13. október 1962. Skólahúsnæðið hefur verið stækkað í þrem áföngum. Norðurálma var byggð árið 1970 og miðálma var byggð 1972. Nýjasta álma skólans var tekin í notkun 1977 og þar hafði Fjölbrautaskóli Suðurnesja aðsetur til ársins 1979 en þá flutti sá skóli í núverandi húsnæði.
Háaleitisskóli
Grunnskóli á Ásbrú
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Háaleitisskóli á Ásbrú var stofnaður skólaárið 2008-2009 og var hann rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla til haustsins 2013 en þá varð hann sjálfstæður skóli. Ásbrú er nýtt hverfi Reykjanesbæjar í mikilli uppbyggingu. Sumarið 2008 voru gerðar breytingar á fyrrverandi skólahúsnæði grunnskóla Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og stofnuð grunnskóladeild fyrir yngri nemendur sem eiga heima á Ásbrúarsvæðinu. Skólinn er vel búinn af tækjum og aðstaða fyrir nemendur og starfsfólk er góð. Í skólanum eru fjögur námsver, Friðheimar er námsver fyrir nemendur í leit að alþjóðlegri vernd, ÍSAT er námsver fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku og Jötunheimar er vellíðunarverið okkkar sem er námsver fyrir nemendur þrífast illa í stórum hópum. Stoðheimar og Álfheimar eru ætluð nemendum sem þurfa aðstoð í námi.
Gerðaskóli
Grunnskóli í Garði
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Séra Sigurður Brynjólfsson Sívertsen stóð fyrir stofnun barnaskóla í Gerðum, árið 1871. Aðdragandinn að stofnun skólans var nokkuð langur, en það var fyrst upp úr 1860, að séra Sigurður fór að ræða við héraðsbúa um stofnun hans. Presturinn lagði sjálfur fram fé til byggingar skólans auk þess sem hann gekk á undan góðu fordæmi í því að safna fé til skólans bæði til byggingarinnar og til þess að hægt væri að halda skólastarfinu áfram. Kaupmenn í Keflavík gáfu fé, en mestu munaði það sem bændur hér gáfu. Það vildi svo vel til að vel áraði, svo að flestir gátu gefið eitthvað fé, og svo unnu margir kauplaust við bygginguna.
Myllubakkaskóli
Grunnskóli í Keflavík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Einkunnarorð skólans eru: VIRÐING - ÁBYRGÐ - JAFNRÉTTI - ÁRANGUR. Einkunnarorðin fléttast inn í markmið skólans.
Grunnskólinn í Grindavík
Grunnskóli í Grindavík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Njarðvíkurskóli
Grunnskóli í Njarðvík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Njarðvíkurskóli er í Ytri Njarðvík í Reykjanesbæ. Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 460 nemendur í 1. - 10. bekk og rúmlega 100 starfsmenn. Sérstaða skólans: Umhverfisvænn grunnskóli sem leggur áherslu á lestrarnám upp allan grunnskólann. Skólinn hefur undir sinni stjórn tvö sérhæfð námsúrræði sem þjóna öllum Reykjanesbæ. Ösp er fyrir fatlaða nemendur sem eru í brýnni þörf fyrir mjög sérhæft og einstaklingsmiðað námsumhverfi og kennsluhætti.
Stapaskóli
Grunnskóli í Njarðvík
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Stapaskóli er heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 16 ára í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Fjöldi nemenda við fullsetinn skóla er um 500 á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri. Stefnt er að því að Stapaskóli verði hjarta hverfisins og muni þjóna íbúum grenndarsamfélagsins sem menningarmiðstöð. Í Stapaskóla fer fram metnaðarfullt skólastarf þar sem gleði, vinátta , samvinna og virðing eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi.
Sandgerðisskóli
Grunnskóli í Sandgerði
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Sandgerðisskóli stendur við Skólastræti. Skólahúsið, Sund- og íþróttamiðstöð bæjarins eru sambyggð þannig að öll kennsla fer fram undir sama þaki. Skólinn hefur verið starfræktur á þessum stað allt frá árinu 1938. En skólahald í Miðneshreppi má rekja mikið lengra aftur í tímann eða allt aftur til ársins 1884. Þá var kennt á tveimur stöðum, annars vegar á Nýlendu þar sem börn af suðurnesinu söfnuðust saman og hins vegar að Flankastöðum en þar var börnum sem áttu heima í Bæjarskershverfi og norðar, kennt. Á báðum þessum stöðum voru reisuleg húsakynni. Kennslutíminn var fjórir mánuðir, tveir mánuðir á hvorum stað. Á þessum fyrstu árum veittu skólarnir kennslu í Nýjatestamentinu, reikningi og lestri.
Stóruvogaskóli
Grunnskóli í Vogunum
Vefsíða skólans:Heimasíða
Um skólann:Haustið 1872 tók “Thorchillii Barnaskólinn í Vatnsleysustrandarhreppi” til starfa hér í Sveitarfélaginu Vogum sem þá hét Vatnsleysustrandarhreppur og náði einnig yfir Njarðvík. Nafnið festist þó ekki við skólann, heldur var hann kallaður Suðurkotsskóli, enda byggður í landi Suðurkots í Brunnastaðahverfi. Seinna (nálægt 1930) breyttist nafnið í Brunnastaðaskóli og þegar skólahald var síðan flutt í Voga árið 1979 fékk skólinn núverandi nafn, Stóru-Vogaskóli, enda byggður í túni höfuðbýlisins Stóru-Voga.