Akur

Leikskóli í Njarðvík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Akur tók til starfa haustið 2007 og hefur Hjallastefnan rekið skólann frá upphafi. Skólinn er 1110 m2 að stærð með 6 kjörnum. Akur er staðsettur í Innri-Njarðvík en mikil fólksfjölgun hefur verið þar á undanförnum árum. Leikskólinn er vel staðsettur hvað náttúru varðar. Börnin hafa mólendi og fjöru í göngufæri sem að sjálfsögðu er nýtt til fullnustu. Fjaran við Narfakotsseylu er útikennslusvæði barna og íbúa í Reykjanesbæ. Svæðið hefur verið þróunarverkefni þeirra þriggja leik- og grunnskóla sem eru í Innri-Njarðvík.

Asparlaut

Leikskóli í Keflavík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Heilsuleikskólinn Asparlaut hóf starfsemi 24. mars 2025. Áður hafði leikskólinn starfað undir nafninu Garðasel í rúm 50 ár frá árinu 1974. Asparlaut er sex deilda skóli fyrir 120 börn með sveigjanlegan vistunartíma, frá 4 tímum og upp í rúmlega 8 tíma vistun. Deildirnar heita Sól, Sunna, Tungl, Máni, Stjarna og Geisli. Tvær deildir fyrir sig deila sameiginlegu svæði fyrir framan deildirnar þar sem meðal annars er sameiginlegt listsköpunarsvæði, bókasafn og leiksvæði.

Drekadalur

Leikskóli í Njarðvík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Drekadalur er nýlegur sex deilda leikskóli hjá Reykjanesbæ sem opnaði í ágúst 2024. Nafnið á leikskólanum okkar Drekadalur er til þess fallið að ýta undir ímyndunarafl og sköpunargleði barnanna og hjálpa starfsfólki, börnum og foreldrum að skapa sannkallaðan ævintýraheim í hjarta Dalshverfi þrjú í Innri Njarðvík.

Gefnarborg

Leikskóli í Garði

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Gefnarborg var byggður af Kvenfélaginu Gefn og tók til starfa 10. júní 1971. Í upphafi var leikskólinn leikskólinn fjögur herbergi með smá eldhúsaðstöðu í miðjunni. Árið 1980 var byggt við leikskólann og varð þá tveggja deilda leikskóli. Kvenfélagið rak leikskólann til áramóta 1985 - 1986 en þá keypti Gerðahreppur hann og rak til 1. ágúst 1986. Eftir það var reksturinn boðinn út og hefur verið í einkarekstri síðan.

Gimli

Leikskóli í Keflavík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Frá árinu 1999 hefur leikskólinn starfað eftir Hjallastefnunni. Þar er lögð áhersla á einfalt og jákvætt starfsumhverfi sem einkennist af vináttu, kærleika, virðingu og gleði. Deildirnar/kjarnarnir eru kynjaskipti og aldursskiptir. Skólinn hefur notið góðs af faglegri leiðsögn Margrétar Pálu Ólafsdóttur, en hún er höfundur Hjallastefnunnar.

Grænaborg

Leikskóli í Sandgerði

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Grænaborg er heilsueflandi leikskóli sem snýst um að vinna markvisst að heilsueflingu í leikskólastarfinu með það að markmiði að bæta heilsu og vellíðan barna og starfsfólks.

Heiðarsel

Leikskóli í Keflavík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Heiðarsel er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur í Reykjanesbæ. Leikskólinn tók til starfa þann 8. október árið 1990. Þar geta dvalið allt að 94 börn á aldrinum tveggja til sex ára og fer það eftir fjölda barna hve margir starfsmenn eru hverju sinni. Leikskólinn starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 78/1994 og Aðalnámskrá leikskóla sem gefin var út af menntamálaráðuneytinu 2011.

Hjallatún

Leikskóli í Njarðvík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Hjallatún tók til starfa í janúar 2001. Leikskólinn var upphaflega fjögurra deilda skóli en byggt var við hann árið 2014 og varð hann þá sex deilda skóli. Í Hjallatúni dvelja 97 börn samtímis á aldrinum 2ja til 6 ára og er boðið upp á sveigjanlega vistunartíma frá 4 tímum upp í 8,5 tíma vistun. Hjallatún er opinn leikskóli þar sem börn og starfsfólk flæða milli deilda.

Holt

Leikskóli í Njarðvík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Holt er staðsettur við Stapagötu 10 í Njarðvík, Reykjanesbæ. Hann var formlega opnaður 15. mars 1985 og voru deildirnar tvær, Kot og Hlíð. Þann 2. janúar 2004 áttu sér stað endurbætur og stækkaður skóli með tveimur nýjum deildum, Laut og Lundi, tekinn í notkun. Árið 2022 var leikskólinn stækkaður um tvær deildir til viðbótar, Móa og Þúfu og er í dag 6 deilda leikskóli með rými fyrir 106 börn.

Krókur

Leikskóli í Grindavík

Vefsíða skólans: Heimasíða

Laut

Leikskóli í Grindavík

Vefsíða skólans: Heimasíða

Skógarás

Leikskóli á Ásbrú

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Heilsuleikskólinn Skógarás er staðsettur á Ásbrú í Reykjanesbæ, á svæði sem áður tilheyrði varnarsvæði Bandaríkjahers. Eftir brottför hersins hófst hröð uppbygging og mótun nýs samfélags á svæðinu og árið 2007 var grunnur að háskólasamfélagi lagður. Á svæðið flutti fjölbreyttur hópur fólks alls staðar að af landinu og hefur sá fjölbreytileiki einkennt nærumhverfi leikskólans allar götur síðan. Leikskólinn tók til starfa 2. september 2008 og deildi fyrstu árin húsnæði með grunnskólanum Háaleiti, þar til hann flutti í núverandi húsnæði haustið 2018.

Stapaskóli

Leikskóli í Njarðvík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Stapaskóli er heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 16 ára í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Fjöldi nemenda við fullsetinn skóla er um 500 á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri. Stefnt er að því að Stapaskóli verði hjarta hverfisins og muni þjóna íbúum grenndarsamfélagsins sem menningarmiðstöð. Í Stapaskóla fer fram metnaðarfullt skólastarf þar sem gleði, vinátta , samvinna og virðing eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi.

Suðurvellir

Leikskóli í Vogunum

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Suðurvellir tók til starfa 9. október 1991. Frá stofnun hans og fram til ársins 2001 var hann ein deild en þá um haustið opnuðu tvær deildir til viðbótar og miðrými. 1. ágúst 2008 - ágúst 2015 var færanleg kennslustofa við leikskólann sem hét Staðarborg. Í ágúst 2024 var tekin í notkun laus færanleg kennslustofa sem hýsir eina deild, Suðurkot heitir hún. Leikskólinn er nú fjögurra deilda og allur aðbúnaður og aðstaða er góð. Börnin eru á aldrinum átján mánaða til sex ára. Deildirnar eru aldursskiptar, þær heita Lágibjalli, Lyngbjalli, Suðurkot og Háibjalli. Í sameiginlegu rými skólans er matsalur, íþróttasalur og listaskáli.

Tjarnarsel

Leikskóli í Keflavík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Tjarnarsel er elsti leikskóli Reykjanesbæjar, hann tók til starfa 18. ágúst 1967. Í skólanum eru 96 börn á fjórum aldursskiptum deildum á Tjarnargötu 19 og einni aldursblandaðri deild á Skólavegi 1. Dvalartími barna getur verið fjórar til átta klukkustundir á dag, eftir óskum foreldra. Áhersluþættir leikskólans eru mál og læsi, vettvangsferðir, umhverfismennt og útinám. Jafnframt er lögð áhersla á fjölbreyttan efnivið til listsköpunar og kubba af öllum stærðum og gerðum.

Vesturberg

Leikskóli í Keflavík

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Stefna Vesturbergs hefur verið sú sama frá upphafi, svæðaskipting eða opinn leikskóli er leiðarljós leikskólans. Litið er á frjálsa leikinn sem rauða þráðinn í starfi skólans. Fyrirmynd leikskólans er dönsk og er upphafsmaður hennar Hulda Ólafsdóttir fyrrverandi leikskólastjóri Vesturbergs. Vesturberg er aldursblandaður leikskóli þar sem börn frá tveggja til sex ára eru saman á heimastofum.

Völlur

Leikskóli á Ásbrú

Vefsíða skólans: Heimasíða
Um skólann: Leikskólinn Völlur hóf starfsemi haustið 2007. Hjallastefnan sá um rekstur skólans frá upphafi og til dagsins 1. október 2025 þegar Reykjanesbær tók við rekstrinum. Völlur er sex kjarna leikskóli sem er aldurs og kynjaskiptur með um 100 börn með sveigjanlegan vistunartíma, frá 4 tímum og upp í rúmlega 8 tíma vistun hverju sinni. Kjarnarnir heita Drengjakjarni, Stúlknakjarni, Rauðikjarni, Bláikjarni, Gulikjarni og Grænikjarna. Um 75% barna eru tví-eða fjöltyngd og eru þjóðerni barnanna því fjölbreytt.