Höfundur
Höfundur er Brynja Stefánsdóttir, verkefnastjóri Gáranna, brynja@geocamp.is
Markmið
Verkefnin eru hugsuð sem tenging við DÍN (Dag íslenskrar náttúru) og eru sett þannig upp að þau virki sem kveikja tengd náttúru og átthögum. Verkefnin eru stutt og einföld í notkun en með hverju fylgir hugmynd að hæfnviðmiði og hvernig má vinna áfram með verkefnið þegar inn er komið.
Aldurshópar
8. - 10. bekkur grunnskóla
Tímalengd
Verkefnið er stutt, um 40 mínútur ættu að duga, allt eftir hvernig hópurinn er samsettur og áhugi þeirra er.
Staðsetning
Hvar sem finna má nægilegt magn af tveimur ólíkum lausum náttúruefnum, til dæmis á skólalóð, í nærumhverfi eða á útinámssvæði.
1. Náttúran mætir manninum
Staðsetning: Skólalóð og nærumhverfi skólans
Markmið
Að nemendur skoði samspil náttúrulegs og manngerðs umhverfis og velti fyrir sér áhrifum mannlegra athafna á nærumhverfið.
Verkefnið
Finnið að minnsta kosti þrjá staði þar sem náttúrulegt og manngert umhverfi mætast. Við hvern stað ræðir hópurinn:
- Hvaða áhrif hefur maðurinn haft á náttúruna?
- Eru áhrifin jákvæð, neikvæð eða hvoru tveggja?
Lokaumræða / vangaveltur
Ræðið saman:
- Hvar sjáum við skýrust áhrif mannsins?
- Hver af þeim áhrifum sem við sjáum eru nauðsynleg og hver mætti minnka?
- Hvernig væri hægt að hanna nærumhverfið með meira tilliti til náttúrunnar?
- Hver ber ábyrgð á nærumhverfinu?
Framhald inni í stofu
Nemendur geta:
- flokkað dæmin í jákvæð og neikvæð áhrif,
- hannað tillögu að úrbót á einum stað,
- búið til stutta kynningu eða plakat,
- skoðað loftmyndir af svæðinu,
- rætt hvernig svæðið gæti þróast á næstu árum.
Hæfniviðmið – Náttúrugreinar
| Við lok 10. bekkjar |
| Umhverfið og lífið | rætt á gagnrýninn hátt tengsl einstaklinga, nærumhverfis og umhverfismála á heimsvísu, |
2. Finnið breytinguna
Staðsetning: Skólalóð eða nærumhverfi skólans
Markmið
Að nemendur æfi sig í að lesa í landslag og nærumhverfi og greina ummerki um breytingar.
Verkefnið
Finnið stað þar sem sjá má skýr merki um breytingar. Breytingin gæti tengst:
- veðrun,
- rofi,
- gróðri,
- vindi,
- vatni,
- frosti,
- sjó,
- mannlegum framkvæmdum.
Hópurinn svarar:
- Hvað er að gerast hér?
- Hvaða ferli eða kraftar gætu valdið breytingunni?
- Hvernig gæti þessi staður litið út eftir 20 ár?
Lokaumræða / vangaveltur
Ræðið saman:
- Hvaða vísbendingar styðja skýringuna okkar?
- Er breytingin stöðug eða gerist hún aðeins við ákveðnar aðstæður?
- Hvað gæti hraðað eða hægt á henni?
- Getur maðurinn haft áhrif á þróunina?
- Hvernig gæti staðurinn litið út eftir 50 eða 100 ár?
Framhald inni í stofu
Nemendur geta:
- teiknað framtíðarmynd af staðnum,
- skrifað stutta vísindalega skýringu,
- leitað að eldri myndum af svæðinu,
- borið saman náttúrulegar og manngerðar breytingar,
- rannsakað eitt ferli nánar, t.d. rof eða veðrun.
Hæfniviðmið – Náttúrugreinar
| Við lok 10. bekkjar |
| Jörðin og alheimurinn | lýst hringrás efna og orku, náttúrulegum ferlum og flæði orku í náttúrunni, |
3. Tíu mínútna náttúrurannsókn
Staðsetning: Skólalóð eða nærumhverfi skólans
Markmið
Að nemendur setji fram rannsóknarspurningu, framkvæmi einfalda rannsókn, safni upplýsingum og dragi ályktun.
Verkefnið
Hver hópur setur fram eina rannsóknarspurningu sem hægt er að kanna á um tíu mínútum. Dæmi:
- Er meiri vindur við hús eða á opnu svæði?
- Hvar finnum við mest af mosa?
- Er meira rusl nálægt gönguleiðum?
- Finnum við fleiri plöntutegundir í skjóli?
- Er raki jarðvegs meiri í skugga en sól?
Hópurinn:
- setur fram rannsóknarspurningu,
- ákveður hvernig hægt er að kanna hana,
- framkvæmir athuganir eða mælingar,
- skráir niðurstöður,
- ber saman upplýsingarnar,
- setur fram ályktun.
Lokaumræða / vangaveltur
Ræðið saman:
- Svaraði rannsóknin spurningunni?
- Var niðurstaðan sú sem við bjuggumst við?
- Hvaða þættir gætu hafa haft áhrif á niðurstöðuna?
- Hvað myndum við breyta ef við endurtækjum rannsóknina?
- Hvaða nýja spurningu vakti rannsóknin?
Framhald inni í stofu
Nemendur geta:
- sett niðurstöðurnar upp í töflu eða myndrit,
- skrifað stutta rannsóknarskýrslu,
- endurtekið rannsóknina á öðrum stað,
- borið saman niðurstöður hópa,
- þróað nýja rannsóknarspurningu út frá niðurstöðunum.
Hæfniviðmið – Náttúrugreinar
| Við lok 10. bekkjar |
| Vinnulag náttúruvísinda | framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum, |
| Vinnulag náttúruvísinda | sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísindalegum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna, |