Brynja Stefánsdóttir
19 Feb

Höfundur

Höfundur er Brynja Stefánsdóttir, náttúrufræðikennari og verkefnastjóri Gárur á Reykjanesi, brynja@geocamp.is


Markmið

Að nemendur kynnist lífverum og lífvana hlutum í fjörum og tengi þannig hugtakið vistkerfi við einn stað.


Aldurshópar

Verkefnið hentar nemendum frá 4 ára upp í 7. bekk grunnskóla.


Tímalengd

80 mínútur


Staðsetning

Gára 2-3 eftir staðsetningu skóla. Svæðið er frjálst að öðru leiti nema að það er sett upp fyrir fjörusvæði.


Undirbúningur kennara

Gott er að kennari hafi með sér nokkra vel valda hluti í bakpokanum og mælum við með tjékklistanum af síðunni sem inniheldur gagnlegar hugmyndir af staðalbúnaði sem gæti hentað.

Kennari þarf að huga að veðri og passa að leiðin að fjöru henti námshópi.

Gott er að prenta út fjörubingóið og vera búin að velja hópa eða einstaklingsverkefni. 

Fyrir eldri hópa getur hentað að vera búin að fjalla um fjöru sem vistkerfi og þá innleiða hugtökin lifandi og lífvana.

Fyrir alla getur verið gott að vera búin að fara yfir það sem er á bingóinu og tengja myndir við allt, en alls ekki eitthvað sem verður að vera búið að gera.

Þetta verkefni hentar einnig þegar veður er millt og gott og hópurinn þarf að komast út í hreyfingu.


Verkefnið

Hægt er að sækja verkefnið hér.


Hæfniviðmið

Hér eru dæmi af hæfniviðmiðum sem möguleiki væri að tengja við verkefni. 

Náttúruvísindi


Við lok 4. bekkjar
Upplifun af náttúrunnisagt frá eigin upplifun af lífverum í náttúrulegu umhverfi,
Flokkun og lífsskilyrði lífvera
rætt um helstu einkenni lífvera og lífsskilyrði þeirra,
Vistkerfinefnt dæmi um samspil lífvera og lífvana þátta,






Athugasemdir
* Netfangið verður ekki birt á vefsíðunni.