Höfundur
Höfundur er Brynja Stefánsdóttir, náttúrufræðikennari og verkefnastjóri Gárur á Reykjanesi, brynja@geocamp.is
Markmið
Að nemendur læri að fylgjast með og skoða mismunandi tegundir fugla. Einnig að auka sýn og gleði þess sem við finnum útivið.
Aldurshópar
Verkefnið hentar nemendum frá 4 ára upp í framhaldsskóla.
Tímalengd
80 mínútur
Staðsetning
Enginn staðsetning er fyrirfram skráð á þetta verkefni en svæði þar sem opið er út að hafi eða í nálægð við sjó hentar best.
Undirbúningur kennara
Gott er að útbúa gönguleið meðfram svæði þar sem sjór er nálægur eða líklega er að möguleiki sé að sjá þessar tegundir fugla.
Prenta þarf út bingóblöðin og ákveða hópastærðir.
Ef möguleiki er að útvega kíki hentar það einstaklega vel. Nóg er að vera með litla þannig en myndavél í síma hentar líka vel ef hægt er að taka góða mynd og stækka hana svo upp.
Ef tími er til hentar vel að fara inn á fuglavefinn og skoða betur þá fugla sem eru á spjaldinu.
Verkefnið
Hægt er að sækja verkefnið hér.
Hæfniviðmið
Hér eru dæmi af hæfniviðmiðum sem möguleiki væri að tengja við verkefni.
Náttúruvísindi
| Við lok 4. bekkjar | |