Dr. Kevin Czajkowski
Janet Struble
10 Jul

Höfundur

Höfundar eru Dr. Kevin Czajkowski og Janet Struble, University of Toledo. Verkefnið hefur verið þýtt yfir á íslensku en einnig fylgir upprunalega verkefnið á ensku neðar í skjalinu.


Markmið

Nemendur vinna í litlum hópum og kanna hvernig varmaorka flyst í ólíkum jarðefnum þegar þau hitna og kólna. Þeir teikna línurit sem sýna hitabreytingar á 15 mínútna hitunartímabili og 15 mínútna kólnunartímabili.

Markmið verkefnisins er að nemendur geti:

  • framkvæmt rannsókn þar sem orkuflutningur í ólíkum jarðefnum er prófaður
  • unnið úr gögnum og sett þau fram á línuriti
  • dregið ályktanir um það sem gerist í lofthjúpi jarðar


Aldurshópar

Verkefnið hentar nemendum á unglingastigi grunnskóla og upp framhaldsskóla.


Tímalengd

Tveir kennslutímar, samtals um 80-100 mínútur. Einnig er hægt að vinna verkefnið í einum 80 mínútna tíma ef gögnin eru tekin saman og línuritið klárað síðar.

Fyrir yngri nemendur eða hóp sem þarf meiri aðstoð við línurit má áætla 2x60 mínútur.


Staðsetning

Skólalóð eða annað sólkríkt og skjólgott útisvæði. Ef veður leyfir ekki útivinnu má framkvæma verkefnið innandyra með lömpum.

Einnig getur verið áhugavert að bera saman svæði og velja því eitt á skólalóð og eitt lengra frá en slíkt lengir verkefnatíma.


Undirbúningur kennara

Kennari safnar saman fimm jafnstórum ílátum og setur jafnmikið magn af sandi, jarðvegi, grasi, vatni og möl eða steinum í hvert þeirra. Velja þarf sólríkan og skjólgóðan stað á skólalóðinni eða undirbúa lampa ef verkefnið fer fram innandyra.

Gott er að:

  • tryggja að efnin séu við svipað upphafshitastig,
  • hafa hitamæla og tímamæli tilbúna,
  • prenta út eða útbúa gagnatöflu fyrir mælingarnar,
  • skipta nemendum í litla hópa og ákveða hlutverk þeirra,
  • rifja upp örugga meðferð hitamæla og lampa,
  • gera ráð fyrir að nemendur mæli á þriggja mínútna fresti í samtals 30 mínútur.

Ef aðeins einn innrauður hitamælir er til staðar þarf að skipuleggja mælingarnar þannig að hitastig allra efnanna sé mælt með eins stuttu millibili og hægt er.


Verkefnið

Hægt er að sækja ítarlega verkefnalýsingu og upplýsingar hér.

Hér má finna skráningarblað fyrir nemendur.

Hér er upprunaleg verkefnalýsing á ensku.


Hæfniviðmið

Hér eru dæmi af hæfniviðmiðum sem möguleiki væri að tengja við verkefni. Listinn er ekki tæmandi og alls ekki skylda að nýta öll hæfniviðmið. 

Náttúruvísindi

Vinnulag náttúruvísindaVið lok 10. bekkjar
AthuganirFramkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum.
Vísindaleg vinnubrögðSett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísindalegum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna.
MiðlunKynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á skýran hátt.
HugtökBeitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður.
Læsi á gögn og náttúruvísindatextaLesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og ánægju og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi.
UmhverfiðVið lok 10. bekkjar
Hringrásir efna og orkuLýst hringrás efna og orku, náttúrulegum ferlum og flæði orku í náttúrunni.
OrkanVið lok 10. bekkjar
OrkaGert grein fyrir orku í mismunandi formum og tengt við varðveislu orkunnar.
VarmiÚtskýrt mismunandi varmaflutning og samspil varma og hitastigs.

Stærðfræði

Vinnubrögð stærðfræðinnarVið lok 10. bekkjar
RannsóknarvinnaUnnið skipulega, einn og í samvinnu, að því að rannsaka, setja fram, greina, túlka og meta stærðfræðileg viðfangsefni og líkön.
Verkfæri og óhlutbundin gögnValið og nýtt ólík hjálpargögn og verkfæri til stærðfræðilegrar iðkunar, þ.m.t. tölvutækni og gervigreind.
Tölfræði og líkindiVið lok 10. bekkjar
GagnavinnslaNotað tölfræðihugtök til að setja fram, lýsa, skýra og túlka gögn.
TölfræðikannanirSkipulagt og framkvæmt tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim.

Íslenska

Talað mál, hlustun og áhorf
Við lok 10. bekkjar
Tjáning
Miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum.
Framsögn
Flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi.
Samræður og rökræður
Nýtt aðferðir sem hann hefur lært til að taka virkan þátt í samvinnu, samræðum og rökræðum, tjáð skoðanir sínar með ýmsum hætti, rökstutt þær og valið þeim miðil sem hentar.
Lestur og bókmenntirVið lok 10. bekkjar
Úrvinnsla upplýsinga
Unnið úr tölulegum og myndrænum upplýsingum, túlkað þær, tengt saman efni sem sett er fram á ólíkan hátt og nýtt sér.
RitunVið lok 10. bekkjar
Uppbygging textaSkrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr.

Upplýsinga- og tæknimennt

Sköpun og miðlunVið lok 10. bekkjar
Vinnsla tölulegra gagnaValið og nýtt hugbúnað við gagnasöfnun, greiningu og framsetningu á tölulegum gögnum.
KynningarefniValið og nýtt hugbúnað við gerð og framsetningu fjölbreyttra og gagnvirkra kynninga.
RitvinnslaValið og nýtt hugbúnað við uppsetningu fjölbreyttra ritunarverkefna og ritgerða samkvæmt viðmiðum um uppsetningu og frágang.
Stafræn gögnVið lok 10. bekkjar
Varðveisla gagnaFlokkað, vistað og varðveitt gögn á öruggan hátt.
Hér​​Hér​​skráningarblað
Athugasemdir
* Netfangið verður ekki birt á vefsíðunni.