Höfundur
Höfundur verkefnis er Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri Gára, sigrun@geocamp.is
Markmið
Umhverfisgögn eru oft sett fram sem línurit, töflur og tölur sem nemendur á yngri stigum geta átt erfitt með að túlka eða tengja við eigið líf. Á sama tíma eru listverkefni oft lítið tengd raunverulegum vísindalegum rannsóknum.
Í þessu verkefni fléttast saman umhverfisvísindi, stærðfræði og skapandi tjáning. Nemendur safna eða nálgast raunveruleg umhverfisgögn og umbreyta þeim í sameiginleg listaverk. Hugmyndin sækir innblástur í svokölluð hitateppi þar sem hitastig hvers dags er táknað með ákveðnum lit. Nemendur nota liti, áferð, form og endurnýttan efnivið til að sýna daglegar eða vikulegar athuganir á umhverfinu.
Aldurshópar
6–12 ára / 1.–7. bekkur. Verkefnið má einfalda fyrir yngri nemendur eða dýpka með flóknari gagnavinnslu og sjálfstæðari rannsóknum fyrir eldri nemendur.
Nánari skipting gæti verið:
Tímalengd
Sveigjanlegt langtímaverkefni sem getur staðið yfir í 4–8 vikur, eina önn eða heilt skólaár. Gögnum er safnað daglega eða vikulega og listaverkið þróast jafnt og þétt yfir tímabilið.
Staðsetning
Kennslustofa, myndmennta- eða textílstofa og skólalóð eða nærumhverfi skólans. Hluti verkefnisins fer fram úti við athuganir og mælingar en gagnavinnsla og listsköpun fer fram innandyra. Fullgert verk má sýna í sameiginlegu rými skólans.
Einnig má safna gögnum við:
Undirbúningur kennara
Kennari velur eða afmarkar rannsóknartímabilið og ákveður hvort nemendur safni eigin gögnum eða vinni með gögn frá áreiðanlegri stofnun.Gott er að:
Ef verkefnið stendur yfir í langan tíma er mikilvægt að ákveða fyrir fram hver ber ábyrgð á mælingum og skráningu á hverjum degi eða í hverri viku.
Verkefnið
Hægt er að sækja ítarlega verkefnalýsingu og upplýsingar hér.
Hér má finna skráningarblað fyrir nemendur.
Hér er upprunaleg verkefnalýsing á ensku.
Hæfniviðmið
Hér eru dæmi af hæfniviðmiðum sem möguleiki væri að tengja við verkefni. Listinn er ekki tæmandi og alls ekki skylda að nýta öll hæfniviðmið.
Náttúruvísindi
| Vinnulag náttúruvísinda | Við lok 10. bekkjar |
| Athuganir | Framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum. |
| Vísindaleg vinnubrögð | Sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísindalegum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna. |
| Miðlun | Kynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á skýran hátt. |
| Hugtök | Beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður. |
| Læsi á gögn og náttúruvísindatexta | Lesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og ánægju og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi. |
| Umhverfið | Við lok 10. bekkjar |
| Hringrásir efna og orku | Lýst hringrás efna og orku, náttúrulegum ferlum og flæði orku í náttúrunni. |
| Orkan | Við lok 10. bekkjar |
| Orka | Gert grein fyrir orku í mismunandi formum og tengt við varðveislu orkunnar. |
| Varmi | Útskýrt mismunandi varmaflutning og samspil varma og hitastigs. |
Stærðfræði
| Vinnubrögð stærðfræðinnar | Við lok 10. bekkjar |
| Rannsóknarvinna | Unnið skipulega, einn og í samvinnu, að því að rannsaka, setja fram, greina, túlka og meta stærðfræðileg viðfangsefni og líkön. |
| Verkfæri og óhlutbundin gögn | Valið og nýtt ólík hjálpargögn og verkfæri til stærðfræðilegrar iðkunar, þ.m.t. tölvutækni og gervigreind. |
| Tölfræði og líkindi | Við lok 10. bekkjar |
| Gagnavinnsla | Notað tölfræðihugtök til að setja fram, lýsa, skýra og túlka gögn. |
| Tölfræðikannanir | Skipulagt og framkvæmt tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim. |
Íslenska
| Talað mál, hlustun og áhorf | Við lok 10. bekkjar |
| Tjáning | Miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum. |
| Framsögn | Flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi. |
| Samræður og rökræður | Nýtt aðferðir sem hann hefur lært til að taka virkan þátt í samvinnu, samræðum og rökræðum, tjáð skoðanir sínar með ýmsum hætti, rökstutt þær og valið þeim miðil sem hentar. |
| Lestur og bókmenntir | Við lok 10. bekkjar |
| Úrvinnsla upplýsinga | Unnið úr tölulegum og myndrænum upplýsingum, túlkað þær, tengt saman efni sem sett er fram á ólíkan hátt og nýtt sér. |
| Ritun | Við lok 10. bekkjar |
| Uppbygging texta | Skrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr. |
Upplýsinga- og tæknimennt
| Sköpun og miðlun | Við lok 10. bekkjar |
| Vinnsla tölulegra gagna | Valið og nýtt hugbúnað við gagnasöfnun, greiningu og framsetningu á tölulegum gögnum. |
| Kynningarefni | Valið og nýtt hugbúnað við gerð og framsetningu fjölbreyttra og gagnvirkra kynninga. |
| Ritvinnsla | Valið og nýtt hugbúnað við uppsetningu fjölbreyttra ritunarverkefna og ritgerða samkvæmt viðmiðum um uppsetningu og frágang. |
| Stafræn gögn | Við lok 10. bekkjar |
| Varðveisla gagna | Flokkað, vistað og varðveitt gögn á öruggan hátt. HérHérskráningarblað |