Brynja Stefánsdóttir
Sigrún Svafa Ólafsdóttir
07 Sep

Höfundur

Höfundur er óræður þar sem verkefnið má finna í ýmsum útgáfum á veraldarvefnum. Samantekin hér að neðan er unnin af Brynju Stefánsdóttur og Sigrúnu Svöfu Ólafsdóttur, verkfnastjórum Gáranna.


Markmið

Verkefnið kynnir nemendum tvíundakerfið á hlutbundinn og skapandi hátt. Nemendur tengja 0 og 1 við tvö ólík laus náttúruefni, kóða bókstafi og orð og æfa um leið rökhugsun, nákvæmni, mynstursgreiningu og samvinnu.


Aldurshópar

3. - 10. bekkur grunnskóla


Tímalengd

Verkefnið er stutt, 12-20 mínútur á elstu hópana eftir að hafa fengið innlögn og sýnikennslu. Í heild getur verkefnið verið 40-80 mínútur, allt eftir áhuga nemenda.


Staðsetning

Hvar sem finna má nægilegt magn af tveimur ólíkum lausum náttúruefnum, til dæmis á skólalóð, í nærumhverfi eða á útinámssvæði.


Undirbúningur kennara

Veljið útisvæði þar sem nemendur geta safnað lausum náttúruefnum án þess að raska gróðri. Gangið úr skugga um að nóg sé af tveimur greinilega ólíkum efnum, til dæmis steinum og laufum. Prentið tvíundastafrófið eða hafið það sýnilegt. Ákveðið hvort hópar kóði einn bókstaf eða stutt orð.


Verkefnið

Hægt er að sækja ítarlega verkefnalýsingu og upplýsingar hér.

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar fyrir nemendur.


Hæfniviðmið

Hér eru dæmi af hæfniviðmiðum sem möguleiki væri að tengja við verkefni. Listinn er ekki tæmandi og alls ekki skylda að nýta öll hæfniviðmið. 

Stærðfræði

Vinnulag stærðfræðinnar Við lok 4. bekkjarVið lok 7. bekkjar
Við lok 10. bekkjar
Verkfæri og hlutbundin gögn
nýtt sér verkfæri og hlutbundin gögn sem þarf til að finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum,
nýtt sér verkfæri og hlutbundin gögn til að rannsaka og finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum,
valið og nýtt ólík hjálpargögn og verkfæri til stærðfræðilegrar iðkunar, þ.m.t. tölvutækni og gervigreind,
Þrautalausnir
nýtt aðferðir og leiðir til að leysa þrautir og rökstutt svör sín,
leyst þrautir og rökstutt svör,
leyst þrautir og rökstutt svör,






Upplýsinga- og tæknimennt


Við lok 4. bekkjarVið lok 7. bekkjar
Við lok 10. bekkjar
Lausnaleit 

þekkt ýmsan hugbúnað og tæki og nýtt þau til að leysa einfaldar þrautir.

nýtt hugbúnað og tæki á fjölbreyttan hátt og til að leysa fjölbreyttar þrautir. Hafa fengið kynningu á grunnhugtökum í forritun.


nýtt forritun til sköpunar og til að efla rökhugsun og lausnaleit.





Athugasemdir
* Netfangið verður ekki birt á vefsíðunni.