Höfundur
Höfundur er Brynja Stefánsdóttir, verkefnastjóri Gáranna, brynja@geocamp.is
Markmið
Verkefnin eru hugsuð sem tenging við DÍN (Dag íslenskrar náttúru) og eru sett þannig upp að þau virki sem kveikja tengd náttúru og átthögum. Verkefnin eru stutt og einföld í notkun en með hverju fylgir hugmynd að hæfnviðmiði og hvernig má vinna áfram með verkefnið þegar inn er komið.
Aldurshópar
1. - 4. bekkur grunnskóla
Tímalengd
Verkefnið er stutt, um 40 mínútur ættu að duga, allt eftir hvernig hópurinn er samsettur og áhugi þeirra er.
Staðsetning
Hvar sem finna má nægilegt magn af tveimur ólíkum lausum náttúruefnum, til dæmis á skólalóð, í nærumhverfi eða á útinámssvæði.
Staðsetning: Skólalóð eða næsta nágrenni
Að nemendur skoði nærumhverfi sitt af athygli, taki eftir fjölbreytileika náttúrunnar og æfi sig í að lýsa því sem þeir sjá.
Enginn sérstakur undirbúningur er nauðsynlegur. Gott er að ákveða fyrirfram á hvaða svæði nemendur mega leita.
Farið út og skoðið litina sem finnast í náttúrunni í kringum skólann. Kennari gefur nemendum mismunandi leitarverkefni, til dæmis:
Ræðið saman:
Nemendur geta:
| Við lok 4. bekkjar | |
| Umhverfið og lífið | sagt frá eigin upplifun af lífverum í náttúrulegu umhverfi, |
Staðsetning: Skólalóð eða næsta nágrenni
Að efla athygli nemenda á náttúrulegu umhverfi og eiginleikum þess og hvetja þá til að skoða það með mismunandi skynfærum.
Enginn sérstakur undirbúningur er nauðsynlegur.
Farið út á afmarkað svæði og reynið að finna:
Ekki þarf að safna hlutunum. Það nægir að finna þá, skoða og sýna öðrum.
Ræðið saman:
Nemendur geta:
| Við lok 4. bekkjar | |
| Umhverfið og lífið | nefnt dæmi um samspil lífvera og lífvana þátta, |
Staðsetning: Skólalóð eða rólegt svæði í nágrenni skólans
Að nemendur þjálfi athygli og hlustun og læri að greina á milli hljóða úr náttúrulegu og manngerðu umhverfi.
Veljið stað þar sem hópurinn getur stoppað á öruggan hátt og verið kyrr í stutta stund.
Nemendur standa eða sitja kyrrir og hlusta í eina mínútu. Reynið að greina eins mörg mismunandi hljóð og þið getið. Að mínútu lokinni flokkar hópurinn hljóðin í:
Ræðið saman:
Nemendur geta:
| Við lok 4. bekkjar | |
| Vinnulag náttúruvísinda | framkvæmt einfaldar athuganir og skráð mælingar á hversdagslegum hlutum samkvæmt leiðbeiningum |