Dagatal með það að markmiði að vekja börnin til umhugsunar um umhverfið og sýna þeim að litlar athafnir í daglegu lífi geta skipt máli.
Verkefnið kynnir nemendum tvíundakerfið á hlutbundinn og skapandi hátt. Nemendur tengja 0 og 1 við tvö ólík laus náttúruefni, kóða bókstafi og orð og æfa um leið rökhugsun, nákvæmni, mynstursgreiningu og samvinnu.
Nemendur safna eða nálgast raunveruleg umhverfisgögn og umbreyta þeim í sameiginleg listaverk.