Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir
04 Nov

Höfundur

Höfundur er Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir, Kjarnastýra á Ásgarði, eg@leikskolinngimli.is ásamt öllum á leikskólanum Gimli.


Markmið

Verkefnið er sett af stað til að opna á nægjusaman nóvember í tengslum við sjálfbærni. Þar er einnig unnið að samvinnu heimilis og skóla. 

Að vekja börnin til umhugsunar um umhverfið og sýna þeim að litlar athafnir í daglegu lífi geta skipt máli.


Aldurshópar

Allir aldurshópar á leikskólastigi. Einnig hentugt fyrir grunnskóla og framhaldsskóla. Einnig hentar verkefnið fjölskyldum af öllum stærðum og gerðum.


Tímalengd

Verkefnið er sett upp þannig að hver dagur mánaðarins inniheldur hvatningu að markmiði sem ýtir undir sjálfbærari lífstíl. Það miðar því að einum mánuði, í þessu tilfelli nóvember.


Staðsetning

Skólasvæði, úti og inni ásamt heimili og nærumhverfi þess.


Lýsing

Dagana 1.–7. nóvember er Sjálfbærnivika UNESCO, þar sem er lögð áhersla á að vekja athygli á sjálfbærni og því hvernig við getum með einföldum hætti stuðlað að umhverfisvænni lífsháttum.

Í tengslum við sjálfbærnivikuna ætlum við að tileinka nóvembermánuð nægjusemi og umhverfisvernd. Við tökum þannig þátt í Nægjusömum nóvember, hvatningarátaki Landverndar og Grænfána verkefnisins, þar sem áhersla er lögð á að draga úr óþarfa neyslu, nýta betur það sem við eigum og njóta þess sem við höfum. Í tilefni þess höfum við útbúið dagatal með einföldum og skemmtilegum verkefnum sem börnin geta unnið í leikskólanum og heima með fjölskyldum sínum. Verkefnin tengjast meðal annars matarsóun, vatns- og rafmagnssparnaði, endurnýtingu og samveru.


Dagatalið má nálgast hér.


Athugasemdir
* Netfangið verður ekki birt á vefsíðunni.